Updeit: lokið í Sept 2007


Eg er að læra “Intergrated” atvinnuflug hjá einum virtasta flugskóla Evrópu, Oxford Aviation Training ltd. OAT er einn þriggja skóla í heiminum sem kennir CAA approved intergrated flugnám.

Intergrated programme svokallað, hefur marga ótvíræða kosti framyfir hefðbundið flugnám en þar er þjálfunin sérhæfð fyrir almennt farþegaflug á breiðþotum eða skrúfuþotum, ..og reyndar dýr eftir því sem er ekki eins ótvíræður kostur;)
Allt snýst þetta um atvinnulíkur en flest flugfélög setja lágmarksflugtímakröfu á nýráðna flugmenn, algengt milli 500 og 1500 tíma, en þau sem velja flugmenn með lægri tímafjölda, taka mörg hver nær eingöngu flugmenn frá Intergrated Course. Milli 150 og 200 nýnemar frá OAT fara beint í vinnu sem aðstoðarflugmenn hjá stærri flugfélugum í evrópu árlega.

Þjálfunin, sem er skipulögð eftir óskum flugfélaganna, tekur einungis 63 vikur og þá er miðað við að einstaklingurinn hafi aldrei komið inn í flugvél áður. Námskeiðið er keyrt á fullu afli alveg frá byrjun en hér neðar má sjá training profile fyrir minn bekk.

Til að komast í þessa þjálfun þarf að standast ýtarleg hæfni- og hæfileikapróf. Þessum prófum er fyrst og fremst ætlað að meta líkur til frama innan flugiðnaðarins og að sjá hvort nemandi hafi getu til að ljúka þessu námi. Prófin tóku 2 daga í oxford og þetta var afskaplega stressandi lífsreynsla.
Þeir sem standast þessi próf, fá svo ýmis forréttindi, svo sem persónulega sérfræðiaðstoð og undirbúning fyrir atvinnuleit, ókeypis endur- eða símenntun ef atvinnu er ekki náð innan 6 mánaða og svo aftur 6 mán síðar og endurgreiðslu námsgjalda ef það kemur í ljós að nemandi hafi ekki það sem þarf til að klára námið. Hver og einn má einungis taka þessi próf einu sinni á ævinni nema þeir sem sjá um þetta telja það vanta mjög lýtið uppá til að ná, en þá er yfirleitt veitt 1 undanþága. Þið getið rétt ýmindað ykkur tilfinninguna við það að labba út úr viðtali við breska viðtalsdómara, eftir að hafa fengið klapp á bakið og boð um að hefja þjálfun við skólann. Eina kommentið sem þeir höfðu handa mér var að þar sem ég var nýkominn til Englands, væri ég enn pínu óöruggur á enskunni en að það væri varla vandamál.


tímalína fyrir bekkinn minn...





Bobby

Robert Lee Evensen

Cedervćnget 39. 1tv.
2830 Virum
Denmark

Tel: +45 2296 5231
Tel: +354 867 3822
Tel: +299 223 224

Msn: afrobertlee "at" hotmail.com

Auglýsing

Live Philosophy

Weaseling out of things is important to learn. It´s what separates us from the animals... –except of course the Weasel
(Homer Simpson)

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit

Innskráningar kubbur