31desember

nýtt blogg, ójáá

(framhald úr síðustu færslu) ...hver færsla verði ekki staf lengri en 300 orð.

Ný færsla:

Stór stund gerðist á heimili okkar verðandi hjóna í gærkvöld, er við skrifuðum undir kaupsamning af ljótu raðhúsi í Greve, Suður af Kaupmannahöfn. Kaupverð er trúnaðarmál eins og í öðrum viðskiptum auðmanna en við búumst við undirskriftum seljanda og banka á pappírinn í fyrstu viku nýs árs. Ef allt gengur upp skv plani fáum við lykla afhenta þann 1 apríl við hátíðlega athöfn með gosvíni og vindlum í boði bobbys. Þá verður litla dóttir mín (vóó, það er skrítið að skrifa þetta) vonanadi komin í heiminn svo hún geti samglaðst okkur hinum.






Jólin tókust líka gríðarvel hjá okkur og Hulda fullkomnaði brúnuðu kartöflurnar sínar á aðfangadag. Sannarlegt jóla-kraftaverk þar. Svo bakaði Hulda líka tæpar 70 sortir af smákökum, svo við erum búin að hafa það rosagott í sófanum okkar um þessi jól. Eg gruna að við munum hafa nóg af kökum alveg þangað til ég fer aftur til grænlands þann 21. Januar á næsta ári. Reyndar þarf Hulda smá að vinna á þeim tíma, svo hún getur víst ekki joinað mér í sófanum allann tímann, en gott meðan endist allavegaSmile

Ykkur til gleði get ég líka sagt að ég er búinn að fá útskriftargjöfina mína úr flugskólanum frá Huldu, sem var vídeóupptökuvél. Svo nú get ég farið að búa til mínar eigin heimildabíómyndir. Fyrsta bíómyndin mín er þegar komin hingað en mörg fleiri ævintýri Huldu eru væntanleg. Áhugasamir handritshöfundar geta einnig sent mér uppköst og við getum stofnað til samstarfs;)

Svo er árið bara að verða búið, en við ætlum að sprengja burt nokkur áramótaheit saman heima hjá vinum okkar í kvöld. Annáll 2009 verður búinn til í formi myndaalbúms hér á síðunni fljótlega eftir áramótin.

Eitt að lokum, BabySam byrjar með dúndurfína janúar-útsölu á barnastöffi í Valbý þann (framhald í næsta bloggi)
31. desember 2009 klukkan 14:45
Robert Lee Evensen
2 athugasemdir
21desember

Og ţiđ sem hélduđ ađ blogg vćri dautt!!

Júú, það er sko víst töff að blogga! Og ekker múður með það. Sjáum til um hvað það verður töff lengi þetta skiptið!

Nóg búið að gerast eins og vanalega hjá okkur en ég nenni nú sennilega ekki að fara útí nein smáatriði en allavega varð frúin ólétt, svo þetta er allt eins og þetta á að vera. Það tókst loksins eftir að ég fann leiðbeiningarmyndband á internetinu. Fann samt engin myndbönd um það hvernig á að vera góður pabbi, svo það verður bara að koma í ljós hvernig það tekst. En okkur hlakkar engu að síður mikið til.

Lífið í danmörku er annars bara eins og það á að vera, þ.e.a.s afar ljúft. Nóg af grillkjöti og hvítvíni og einstaka lax, en það er kanski helst að frétta að við erum jafnvel búin að finna okkur íbúð til að kaupa hér í borg. Stefnan er tekin á raðhús á 110% erlendu láni, enda erum við Hulda sannir auðmenn af íslenskum uppruna. Þá verðum við með nægt gistipláss handa barnapíu-gestum og háaloft fyrir þá sem ætla ekki að hjálpa til við bleyju-skiptin.

Svo eru víst jólin á næsta leiti, en við höfum ákveðið að flyja jólastressið í kringlunni og ætlum að vera bara hérna um jólin. Við erum búin að finna hangiket og klaufabrauð en við erum ekki enn búin að læra að gera brúnaðar kartöflur, svo þetta verður spennandi.
En ég held að við höfum aldrei nokkurntíma verið svona tímanleg með jólagjafir, enda búin að setja síðustu gjöfina í póst til íslands þann 9. Des. Svo sannarlega sem þessi jól verða jólastress-laus, en venjulega er bobby á ferð í kringlunni á þorlákskvöldi, að velja gjafir og gera jólakort.
Við erum að verða svo fullorðin!!

Eg ætla að setja markmið um að (framhald í næsta bloggi...)

21. desember 2009 klukkan 22:41
Robert Lee Evensen
4 athugasemdir

Bobby

Robert Lee Evensen

Cedervćnget 39. 1tv.
2830 Virum
Denmark

Tel: +45 2296 5231
Tel: +354 867 3822
Tel: +299 223 224

Msn: afrobertlee "at" hotmail.com

Auglýsing

Live Philosophy

Weaseling out of things is important to learn. It´s what separates us from the animals... –except of course the Weasel
(Homer Simpson)

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit

Innskráningar kubbur