Vóóó,það gengur auðvitað ekkert nema klukkan hér og það fer svo sannarlega að koma tími á aðra klippingu.
Eg er búinn að vera svaka bisíí að fljúga um með hvalatalningarlið útum alla austurströndina, frá Kulusuk og upp að Skoresbysund, sem er víst lengsti eða dypsti fjörður heims,man ekki alveg hvort það var.Á leiðinni þræddum við hvern einn og einasta smáfjörð í 700 feta hæð, (sem er mjög lágt) og við sáum mörg tonn af hvölum, 5 ísbirni og einn heimskautaúlf.Svo voru nokkrir sætir refir að þvælast fyrir utan hótelið okkar í Kulusuk, en þeir teljast varla til stórtíðinda.Ferðin gekk að óskum og við vorum mjög heppin með veður allan tímann,tveir dagar minnir mig á 3 vikum sem við flugum ekki vegna veðurs, en mér þótti merkilegt hvað er enn mikið af hafís í fjörðunum.Svo eru menn að tala um global warming,pifff..
Eg er búinn að logga 70 tíma í bókina mína í þessari törn, svo ég er kominn uppí tótal 470 flugtíma, sem er bara ansi laglegt.
Núna sit ég í Nuuk og tel klukkutímana þangað til ég kem heim til Huldu minnar og þegar ég mæti skilst mér að sjálf móðir mín og minsta systirin verði með í móttökunefndinni.Það verður gaman að sjá þær allar.Svo eru líka fleiri gestir væntalegir, Valdís systir Huldu og svo fullt af brjáluðum aðdáendum Kirk Franklin sem verður með tónleika í Danmörku eftir 2 vikur.
Eg ætlaði að reyna að vera mega duglegur að finna mér aukavinnu í dk í næsta fríi, þarsem álagnigarseðilinn frá skattinum var ekki sérlega gleðilegur, en það verður líklegast að bíða fram að næsta fríi.Eg neyðist til að kenna huldu um þetta fyrir að vera svona vinsæl.Eg er búinn að leggja hart að mér alla ævi við að vera svo leiðinlegur að enginn vill heimsækja mig en hulda ræfillinn gleymdi smá að hugsa þegar hún ákvað að vera svona góð við alla:)
Nei nei,auðvitað eru allir velkomnir í heimsókn, bara ef menn greiða aðgangseyrinn og taka ruslið með sér út þegar menn fara heim.
Planið er svo að reyna að gabba alla MA-inga sem eru búsettir innan seilingar í smá gildru á Amager ströndinni næstu helgi, svo be there or be skver...
Svo lennti ég í killer haglél áðan á röltinu uppá flugvöll þar sem ég hef internet, fékk meira að segja sár í andlitið eftir að hafa reynt að ráða í skýin og sjá hvaðan í ósköpunum þetta kom. ..og ég er enn blautur, nú 3 tímum síðar næstum..
Ps.Mestu mistök lífsins að kaupa sér “okologiske microovn popcorn uden tilsat fedt”. ..with no butter!!What the... ..How could I not notice that!!!
23. ágúst 2008 klukkan 18:33
Robert Lee Evensen 5 athugasemdir
Eg er búinn að vera í fríi í viku og búinn að gera eftirfarandi:
-Fara í klippingu, kom frá grænlandi síðast með gott sítt að aftan -Endurnýja flugheilbrigðisskírteinið mitt hjá fluglækni sem bað mig um að vera nakinn í skoðuninni -Fara til Svíðþjóðar að borða vondan subway og góða Pizzu Hut -Borða pasta með KM og Pésa -Telja 3 nakta nágranna okkar hér í amager, allt kvenkyns og misvel útlítandi nágrannar. -Installa nýjasta Command og Conquer og alveg að verða kominn í GDI endaborðið -Hjóla uppí Lyngby frá Amager í hellidembu þar sem ég þurfti að leita skjóls í kyrkju til að vinda buxurnar mínar og þurrka mig með snýtibréfum -Heimsækja fasteignasala og skoða hugsanlega nýja hverfið okkar -Drekka eplasíder með Birki á barnum -Sortera allt bókhaldið mitt -Borða grillsvín og pulsur og drekka fullt af Johnny Walker með Trausta og Guðrúnu Fönn hjá þeim í sveitinni
og taka þá ákvörðum um að vera búinn að versla mér íbúð og fluttur fyrir áramót
Njótiði restarinnar af þessum annars ágæta sunnudegi
og ps. Hjalti Jónsson er núna giftur henni láru sinni svo allir senda hjalta tilhamingjusms í símann 821 6807
20. júlí 2008 klukkan 15:40
Robert Lee Evensen 2 athugasemdir
Eg er kominn með fasta íbúði í Nuuk, svo núna mun ferðatöskulífið róast aðeins þó svo að flest okkar verkefni séu flogin annarstaðar frá. Það góða við það er að þá get ég allavega geymt dót hér meðan ég fer í frí til DK, en ekki verið að draga með mér tonn af búningum og örðu dralsi sem ég hef ekkert að gera með heima. mínusinn við þetta fyrirkomulag er að þetta er smá dýrara og maður á eflasut eftir að fá sér internet og þannig í þessa íbúð líka svo verðið mun bara hækka.
Í víkunni er ég búinn að fljúga alla leið til nyrsta bæjar grænlands þar sem við eyddum nótt á hóteli og svo er ég líka búinn að fljúga til syðsta bæjar eyjunnar, þannig að það er búið að vera mikið ferðalag. Bærinn Qaanaaq sem er nyrsti bærinn, er mjög sérstakur. Þar lifir fólkið nánast bara á náttúrunni og hval- eða fiskveiðum og þar er ennþá heilmikill hafís. Þeir fara á hundasleðum út á hafísinn þangað þar sem hann byrjar að springa og veiða hvali og seli þaðan upp um sprungurnar. A ísnum er dýrið svo skorið í flutningsfæra bita og hver einarsti partur er nýttur í eitthvað. Þegar við vorum þar voru einmitt svona leiðangrar að leggja af stað en þetta eru venjulega um 10 klst ferðir. Ef við hefðum haft aðeins meiri tíma þá hefðum við geta farið með í hundasleða hvalveiðiferð, sem hefði náttúrulega bara verið geggjað. En í staðinn fór ég í smá miðnætur-fjallgöngu í sólinni, sem var btw ansi hátt á lofti alla nóttina.
Svo í næstu viku verðum við að fljúga eitthvað út frá Kulusuk sem er á austurströndinni og þegar ég kem "heim" til nuuk þaðan verður bara vika eftir af þessari vinnutörn.
já, svo var ég að dæla inn nokkrum myndum frá íslandsferðinni síðustu og heimsókn foreldra huldu til okkar.
27. júní 2008 klukkan 18:56
Robert Lee Evensen 2 athugasemdir
Nú eru liðnar nærri 5 vikur frá síðasta bloggi og svo sannarlega kominn tími á nýtt.
Eg er búinn að vera í 4 vikna löngu dúndur fríi en rétt nýkominn aftur til Nuuk og verð hér fram til 10. juli.Nú eru ég nefnilega kominn inná ársplan svo ég veit nokurnveginn hvenar ég er on og hvenar ekki.
Í fríinu fengum við foreldra huldu í heimsókn og höfðum það fínt og keyptum okkur grill til að setja á svalirnar okkar.Það er merkilegt hvað maður gerir bara svona túristastuff þegar maður er með gesti. Mæli með að þið lesið allt um það hér...
Svo fóru Svana og Jón heim með sólbruna til minningar um hitann heima hjá okkur og við tók desperate leit að útskriftar-kjól handa huldu minni.Hún er nefnilega búin að klára kennarprófið sitt núna, duglega huldan sú.
Leitin virtist ekki ætla að bera neinn árangur en á leiðinni heim eftir dag numer 4 sáum við loksins pínulitla búð á strikinu og þar fundum við kjólinn.Eg lærði mikið um kjóla og eftir þessa reynslu öðlaðist ég þá hæfileika (eða galla) að skoða og fella dóm á kjóla sem aðrar stelpur ganga um í.Fyrr skoðaði ég sko allt annað en kjólinn þeirra en nú er það búið.
Svo fór ég í smáferð til nokkurra ljósafyrirtækja í Kaupmannahöfn til að athuga með aukavinnu og ég var kominn til Roskilde í smá verkefni strax næsta dag.Kaupið var ekki sérlega gott en ég komst að því að hér er sami skortur á ljósafólki og var í Oslo um árið.Það var stór þáttur í því hversu mikla vinnu ég fékk þar úti svo þetta ætlar að lofa góðu hér líka.
Eg fór líka heim til að ljóssetja Whitesnake í laugardalshöllinni.Ekkert svosum meira um það að segja annað en það að það gekk bara vel og allir ánægðir með okkar vinnu.
Sound Check, það er yfirleitt besti parturinn af tónleikum, þá er maður einn í höllinni að hlusta á bandið
Hér eru svo kapparnir á sviðiniu, ævagamlir alveg
Eg og ljósamaðurinn þeirra, fínasti gaur alveg
Þegar við Hulda komum til Akureyrar tók við heljarinnar kökuveisla í tilefni útskriftarinnar og fullt af fólki kom í heimsókn. Eg sakna þess strax að borða nánast ekkert nema kökur.
Set inn myndir hvað úr hverju
Nóg í bili,ætla að halda áfram að lesa mig til um í Standard Procedures Manual.Fullt af góðu airmanship stuffi hér.Ykkur til fróðleiks hefur Air Greenland leyfi frá Dönsku flugmálastjórninni til að henda út birgðum, búnaði eða pósti með fallhlífum út úr Twin Otternum á flugi.Spennandi það
Bobby Over
21. júní 2008 klukkan 18:00
Robert Lee Evensen 3 athugasemdir
Það eru sennilega ekki margir flugmenn sem fá að sjá og upplifa það sem ég vinn við hér. ég tel mig einstaklega heppinn að hafa fengið þessa vinnu. Það er margt búið að gerast en ástæða lítillar bloggunar er genaralt lítið um góðan aðgang að internetinu. Eini staðurinn sem ég get tengt tölvuna mína ókeypis við netið er á skrifstofunni í Nuuk en ég er oftast staðsettur í bæ sem heitir Söndreström eða Kangerlussuaq á grænlensku. Eftir að ég kom aftur út frá jarðaförinni hans afa er búið að vera mikið flug og oft langir dagar, meira að segja svo langir að það er hvergi hægt að fá mat þegar við komum heim. Eg er kominn uppí 124 flugtíma á DHC-6, og talan hækkar bara þokkalega hratt. fyrsta stóra verkefnið mitt var 50 klst hvalatalningaflug þar sem við flugum í lágri flugæð út á rúmsjó og fólk sat afturí og taldi og taldi. ég sá sjálfur ábyggilega milli 60 og 80 hvali sjálfur. Við fórum næstum því hálfa leið til kanada en þar var hafísinn orðinn það þéttur að það voru engar sprungur fyrir hvali að koma upp og anda. En á leiðinni sáum við ísbjörn sem var að boðra sel. Við flugum nokkrar ferðir yfir hann og tókum myndir og svo leyfðum við honum að halda áfram að borða selinn sinn. mig langar að smakka sel... Svo er ég líka búinn að fara nokkrar ferðir uppá jökul og lenda á skíðum. Fyrsta skíðalendingin mín var frekar rough og við slitum einn vír sem heldur öðrum vír frá því að slást í flugvélina. Ekkert hættulegt þó og við komumst á alla hina staðina án vandræða. fyrst vorum við að fara með vísindamenn sem voru að dánlóda veðurupplýsingum úr veðurstöðvum víðsvegar um jökulinn og aðra sem voru að mæla bráðnum og eitthvað fleira. Svo núna í fyrradag fórum við með hóp túrista sem ætlar þvert yfir jökulinn á hundasleðum og gönguskíðum. Eg væri alveg til í að prófa þannig ferð en þær eru víst ansi dýrar skillst mér. Það er fátt skemmtilegra en ferð uppá jökul í góðu veðri og með eitt stykki harðsoðið egg til að japla á, umm hvað það er glæsileg aðstaða. Næst ætla ég að taka með sólstól til að sitja á meðan vísindamennin moka og puða. Núna erum við semsé í nuuk í smá pásu og líklegast fæ ég bara að koma heim til huldu fljótlega. Það verður gaman en ég er eiginlega kominn með smá leið á hótelum. Sérstaklega er ég þó að þreytast á kaffiteríunni á hótelinu í Sönderström, því þar er eini staðurinn sem við fáum mat og þar eru ekki nema tæpir 20 réttir á boðstólnum. Eg er búinn að prófa þá alla, ansi oft:) Það er reyndar einn pizzustaður þar líka og hann er ágætur, hann er þó bara opinn á sumrin og frekar dýr. Eg er enn að reyna að spara eins og ég get þangað til við náum að losna við yfirdráttinn minn sem er enn í hæstu hæðum.
Eg var að dæla inn nokkrum myndum frá nokkrum nýlegum flugferðum og ég mæli með að þið skoðið þær, sérstaklega ef þið hafið jafn gaman af snjó og ég;) Það vantar svona kommentakerfi fyrir myndir á þennan annars ágæta vef...
ætla aftur niður í bæ og finna mér smá mat fljótlega Reyni að henda annari færslu hingað inn áður en ég fer heim
Slater Bobby
17. maí 2008 klukkan 22:08
Robert Lee Evensen 5 athugasemdir
Afi minn, Einar Adolf Evensen, er dáinn og var jarðaður á Blönduósi um síðustu helgi.Sem betur fer náði ég að vera viðstaddur en það var frekar tæpt að ég fengi svo langt frí.
Alveg frá því ég man eftir mér hefur Afi verið óður í að vinna, og Pabbi hefur sömu eiginleika og ég gruna mig um það líka.Hann var trésmiður og á heiður af byggingu margra húsa á og nálægt Blönduósi.Hann rak m.a. fyrirtækið Fróði hf sem var eitt stærsta fyrirtæki í Húnavatnssýslu í langan tíma. Þegar ég kom í heimsókn útá verkstæðið til hans var hann iðulega grettinn á svip með einhverja spýtu eða plötu í vélsöginni og gleraugun alveg að detta fram af nefinu á honum.Undir hljómaði útvarp kántrýbær í bláabotni.Svo sópaði hann alltaf gólfið og blés af skyrtunni sinni með loftbyssunni áður en hann fór heim.Við vorum heimiklir vinir og við unnum mikið saman. Eitt það síðasta sem hann gerði var að byggja með okkur pabba íbúð foreldra minna í garðabæ.Þar bjuggum við í bílskúrnum og hann smíðaði sér rúm sem var allt of stutt fyrir hann og mjög hart en hann svaf engu að síður vel í því.Við höfðum það svaka gott og unnum stíft við feðgarnir í nokkra mánuði áður en ég flutti til Noregs. Við afi vorum með svipaðan húmor og hann kenndi mér góða ensku.“Hver á þessa bók” þýðist sem “Hotspring river this book”.Afi átti alveg sérstakt glott þegar hann var að segja eitthvað fyndið. Uppáhaldsmyndir afa voru “the memphis belle” sem er flugvélamynd og “Das Boot” sem er kafbátamynd.
Eg á helling af góðum minningum um afa gamla en hér er hvorki pláss né tími til að nefna þær allar svo ég held ég láti þetta gott heita í bili.
Næsta fyrirtæki sem ég stofna mun fá nafnið Fróði og Fræðingurinn ehf. til að sameina hugsjón Huldu minnar og minningu um Afa gamla. Þangað til næst.. Bobby
28. apríl 2008 klukkan 20:00
Robert Lee Evensen 6 athugasemdir
Eg borðaði heimsins versta borgara áðan,það var blómkálsborgari.Hann er þannig að blómkálið er hakkað og pressað í borgara, svo er það raspað og að lokum djúpsteikt, svo það líti út eins og fiskur eða kjúlli og þannig fært um að gabba grunlausa menn eins og mig.Hvílíkur viðbjóður en ég borðaði hann þó allann því ég er svangur.
Svo sá ég líka berbrjósta fyrirbæri á strætóstoppinu um daginn.Þetta gerðist mjög snöggt þannig að ég sá ekki hvort það var kall eða kona en líklega þó kona.
Ps. var loksins að dæla inn myndum, finnið þær hér! (hahaha, þetta var bara gabb, enginn linkur)
Slater, Bobby
08. apríl 2008 klukkan 21:30
Robert Lee Evensen 6 athugasemdir
Eg fann í búð í Nuuk 1,5 kilo af hökkuðu uxakjöti á 39 krónur danskar, sem er alger kostakaup þannið að ég var ekki lengi að skella mér á einn pakka.Með þessu keypti ég mér eplamauk, hrökkbrauð og pakka af spaghettii.Nú eru liðnir 3 dagar síðan og enn er til nóg hakk og spagetti í allavega 2 máltíðir í viðbót.Eg er ekki með örbylgjuofn og því skelli ég kássunni allaf á pönnuna til að hita hana upp.Eg er ekki viss um að það megi hita þetta upp svona oft þvíþað er orðið ansi þreytt verð ég að segja.Það verður sennilega smá bið í að ég ráðist aftur í svona magninnkaup meðan ég er einn..
sendi inn myndir frá páskafríinu fljótlega, á eftir að setja þær inn og minnka þær eitthvað en ég nenni því bara ekki núna.
31. mars 2008 klukkan 17:19
Robert Lee Evensen 6 athugasemdir
Eg er kominn á þá niðurstöðu að halda að ef maður hefur bara takmarkað frí að þá nýti maður það ósjálfrátt mikið betur en ef maður hefur mikið frí. Eg er allavega búinn að gera margt og mikið frá því ég kom heim, búinn að fara í IKEA og kaupa nýja búslóð, halda matarboð og svo buðum við öllum sem við þekktum í heimsókn um kvöldið. Þið sem misstuð af því... ..óheppin!!
Við erum líka búin að baka ýmislegt og fara í fyllerísrferðir niður í bæ og svo er ég líka búinn að finna á netinu fjarstýrt flugmodel af Twin Otter til sölu. Eins og alvöru vélin þarf módelið aðeins örfáa metra til að taka á loft (sjá myndband) . Þess á milli er ég buinn að vera mjög upptekinn við að lesa Tinna og horfa á Leathal Weapon myndirnar.
í dag gerðum við vöfflur með syrópi og súkkulaði og sem betur fer eigum við smá afgang þangað til á morgun. Við keyptum okkur svo ódýrustu skinkuna fyrir kvöldmatinn og ég er enn alveg pakkasaddur, en er þó búinn að grúttapa í Monopoly við Huldu. Hún er greinilega mikið betri með peninga en ég svo hún er héðan af með stjórn á netbankanum mínum..
Ein spurning í lokin, hvort segir maður aldrey eða aldrei, mér finnst bæði jafn vitlaus í dag og ég nenni ekki að skoða í orðabók!
Until later Bobby
23. mars 2008 klukkan 23:17
Robert Lee Evensen 2 athugasemdir
jebbsí pepsí, ég er kominn heim í bili eftir að hafa verið að fljúga um með brjálaða vísindamenn með heimasmíðaðann radar í Grænlandi og í því tilefni verður efnt til innflutningsveislu heima hjá okkur í kaupmannahöfn næsta miðvikudag. Boðið verður upp á uppáhaldið mitt sem er 12 ára Jameson ásamt svo einhverju öðru sulli úr fríhöfninni. Þeir sem eru í kaupmannahöfn um páskana og skilja íslensku er velkomið í heimsókn
Við Hulda erum líka búin að gera teikningar af skilrúmi til að loka af skrifstofuhorninu okkar og við höfum ákveðið að fara í smá bisness með það. Versta er að öll verkfærin mín eru enn í Oslo svo að áður en við getum byrjað að smíða verðum við að fara í ferð yfir sjóinn og uppá háaloft í Uranienborgvein 12, sem er við hliðiná konungshöllinni. Þegar þetta verður komið í gang má finna skilrúm frá "dröfn design" útum allt. Þeir verða bæði mjög flottir og rándýrir.
Gatarinn minn er líka týndur!!! Gaddeemit
Bobby Jameson
14. mars 2008 klukkan 21:20
Robert Lee Evensen 1 athugasemd