nýtt blogg, ójáá

(framhald úr síðustu færslu) ...hver færsla verði ekki staf lengri en 300 orð.

Ný færsla:

Stór stund gerðist á heimili okkar verðandi hjóna í gærkvöld, er við skrifuðum undir kaupsamning af ljótu raðhúsi í Greve, Suður af Kaupmannahöfn. Kaupverð er trúnaðarmál eins og í öðrum viðskiptum auðmanna en við búumst við undirskriftum seljanda og banka á pappírinn í fyrstu viku nýs árs. Ef allt gengur upp skv plani fáum við lykla afhenta þann 1 apríl við hátíðlega athöfn með gosvíni og vindlum í boði bobbys. Þá verður litla dóttir mín (vóó, það er skrítið að skrifa þetta) vonanadi komin í heiminn svo hún geti samglaðst okkur hinum.






Jólin tókust líka gríðarvel hjá okkur og Hulda fullkomnaði brúnuðu kartöflurnar sínar á aðfangadag. Sannarlegt jóla-kraftaverk þar. Svo bakaði Hulda líka tæpar 70 sortir af smákökum, svo við erum búin að hafa það rosagott í sófanum okkar um þessi jól. Eg gruna að við munum hafa nóg af kökum alveg þangað til ég fer aftur til grænlands þann 21. Januar á næsta ári. Reyndar þarf Hulda smá að vinna á þeim tíma, svo hún getur víst ekki joinað mér í sófanum allann tímann, en gott meðan endist allavegaSmile

Ykkur til gleði get ég líka sagt að ég er búinn að fá útskriftargjöfina mína úr flugskólanum frá Huldu, sem var vídeóupptökuvél. Svo nú get ég farið að búa til mínar eigin heimildabíómyndir. Fyrsta bíómyndin mín er þegar komin hingað en mörg fleiri ævintýri Huldu eru væntanleg. Áhugasamir handritshöfundar geta einnig sent mér uppköst og við getum stofnað til samstarfs;)

Svo er árið bara að verða búið, en við ætlum að sprengja burt nokkur áramótaheit saman heima hjá vinum okkar í kvöld. Annáll 2009 verður búinn til í formi myndaalbúms hér á síðunni fljótlega eftir áramótin.

Eitt að lokum, BabySam byrjar með dúndurfína janúar-útsölu á barnastöffi í Valbý þann (framhald í næsta bloggi)
31. desember 2009 klukkan 14:45
Robert Lee Evensen
Hulda skrifar ...
Einu sinni sagðir þú mér að þegar ég væri búin að læra að gera brúnaðar kartöflur væri ég orðin eins fullkomin og eiginkona geti verið...svo nú verður alla vega ekki bakkað út úr brúðkaupinu!!! :)
01. janúar 2010 klukkan 22:03

Skrifa athugasemd

Bobby

Robert Lee Evensen

Cedervćnget 39. 1tv.
2830 Virum
Denmark

Tel: +45 2296 5231
Tel: +354 867 3822
Tel: +299 223 224

Msn: afrobertlee "at" hotmail.com

Auglýsing

Live Philosophy

Weaseling out of things is important to learn. It´s what separates us from the animals... –except of course the Weasel
(Homer Simpson)

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit

Innskráningar kubbur