Gleđilegt nýtt ár og allt ţađ..
Góðir hálsar..Nú erum við Hulda komin aftur heim eftir mikið stress jólafrí. 2 Vikur eru ekki nægilega langur tími til að hitta alla sem maður þekkir og hafa það notalegt með fjölskyldunum báðum um leið.
Við gerðum þó gott úr því sem við höfðum og náðum að tikka flest af listunum okkar, utan við það að ég náði ekki að klára að smíða flugvélina mína. Fór nefnilega í veiðiferð með pabba og gússa í staðinn, þar sem við festum jeppann svo rækilega í drullu að við veiddum ekki neitt. Það var engu að síður mjög góð ferð. Veiðihúsið sem við gistum í var ekkert annað en gömlu vinnubúðirnar okkar sem við eyddum mörgum vikum í hérna í denn, þegar við vorum að plægja niður kapla eða gera einhvern annan fjanda af okkur.
Eg býst við að hulda muni rekja jólafríið í gegn á sínu bloggi svo ég nenni ekki að skrifa það allt hér líka. Sjá Huldublogg hér.
Eitt get ég þó sagt, en það er það að við erum trúlofuð núna, og ætlum jafnvel að eiga fund með prestinum einn góðan sumardag árið 2010. Það gerðist á jóladag en upphaflega planið var aðfangadagur. Mér var bara of heitt þann dag og með kökk í hálsinum af einhverskonar stressi svo það tókst ekki. Hvernig ætli sjálf giftingin verði??? Hulda er strax byrjuð að plana og spurði mig í gær í hvaða fötum ég ætlaði að vera, en ég svaraði bara að ég skildi vera búinn að ákveða það um páskana á næsta ári. Henni finnst ég ábyggilega full rólegur, hehe
En núna erum við í óða önn með að leita okkur að íbúð nær vinnunni hennar huldu, erum búin að fá að skoða helmargar holur, misgóðar og misdýrar að sjálfsögðu, en við gerum ráð fyrir að ákveða okkur í næstu viku og flytja svo 1 feb. Það er allavega úr nægu að velja. En já það er kannski best að segja það núna að við erum búin að ákveða að bíða með að versla okkar eigin íbúð þangað til markaðurinn kemst á aðeins meira jafnvægi, og ætlum að leigja í svona ár í viðbóðt. Þá verðum við líka komin með hærri laun og fáum betra greiðslumat, svo þetta er allt skv planinu:)
Svo kemur Dettifossinn á mánudag og ætlar að búa með okkur þangað til hann finnur sína eigin íbúð. ég ætla sko að láta hann svitna við kassaburð í flutningunum, múhahaha, (ég hef sko aldrei skrifað þetta áður)
EG held bara ég hafi ekki meira um þetta að segja svo ég ætla að bara að ýta á send og slökkva á tölvunni.
þangað til næst
bobby
10. janúar 2009 klukkan 18:46
Robert Lee Evensen
Robert Lee Evensen
