(framhald úr síðustu færslu) ...hver færsla verði ekki staf lengri en 300 orð.
Ný færsla:
Stór stund gerðist á heimili okkar verðandi hjóna í gærkvöld, er við skrifuðum undir kaupsamning af ljótu raðhúsi í Greve, Suður af Kaupmannahöfn. Kaupverð er trúnaðarmál eins og í öðrum viðskiptum auðmanna en við búumst við undirskriftum seljanda og banka á pappírinn í fyrstu viku nýs árs. Ef allt gengur upp skv plani fáum við lykla afhenta þann 1 apríl við hátíðlega athöfn með gosvíni og vindlum í boði bobbys. Þá verður litla dóttir mín (vóó, það er skrítið að skrifa þetta) vonanadi komin í heiminn svo hún geti samglaðst okkur hinum.
Jólin tókust líka gríðarvel hjá okkur og Hulda fullkomnaði brúnuðu kartöflurnar sínar á aðfangadag. Sannarlegt jóla-kraftaverk þar. Svo bakaði Hulda líka tæpar 70 sortir af smákökum, svo við erum búin að hafa það rosagott í sófanum okkar um þessi jól. Eg gruna að við munum hafa nóg af kökum alveg þangað til ég fer aftur til grænlands þann 21. Januar á næsta ári. Reyndar þarf Hulda smá að vinna á þeim tíma, svo hún getur víst ekki joinað mér í sófanum allann tímann, en gott meðan endist allavega
Ykkur til gleði get ég líka sagt að ég er búinn að fá útskriftargjöfina mína úr flugskólanum frá Huldu, sem var vídeóupptökuvél. Svo nú get ég farið að búa til mínar eigin heimildabíómyndir. Fyrsta bíómyndin mín er þegar komin hingað en mörg fleiri ævintýri Huldu eru væntanleg. Áhugasamir handritshöfundar geta einnig sent mér uppköst og við getum stofnað til samstarfs;)
Svo er árið bara að verða búið, en við ætlum að sprengja burt nokkur áramótaheit saman heima hjá vinum okkar í kvöld. Annáll 2009 verður búinn til í formi myndaalbúms hér á síðunni fljótlega eftir áramótin.
Eitt að lokum, BabySam byrjar með dúndurfína janúar-útsölu á barnastöffi í Valbý þann (framhald í næsta bloggi)
31. desember 2009 klukkan 14:45
Robert Lee Evensen 2 athugasemdir
Júú, það er sko víst töff að blogga! Og ekker múður með það. Sjáum til um hvað það verður töff lengi þetta skiptið!
Nóg búið að gerast eins og vanalega hjá okkur en ég nenni nú sennilega ekki að fara útí nein smáatriði en allavega varð frúin ólétt, svo þetta er allt eins og þetta á að vera. Það tókst loksins eftir að ég fann leiðbeiningarmyndband á internetinu. Fann samt engin myndbönd um það hvernig á að vera góður pabbi, svo það verður bara að koma í ljós hvernig það tekst. En okkur hlakkar engu að síður mikið til.
Lífið í danmörku er annars bara eins og það á að vera, þ.e.a.s afar ljúft. Nóg af grillkjöti og hvítvíni og einstaka lax, en það er kanski helst að frétta að við erum jafnvel búin að finna okkur íbúð til að kaupa hér í borg. Stefnan er tekin á raðhús á 110% erlendu láni, enda erum við Hulda sannir auðmenn af íslenskum uppruna. Þá verðum við með nægt gistipláss handa barnapíu-gestum og háaloft fyrir þá sem ætla ekki að hjálpa til við bleyju-skiptin.
Svo eru víst jólin á næsta leiti, en við höfum ákveðið að flyja jólastressið í kringlunni og ætlum að vera bara hérna um jólin. Við erum búin að finna hangiket og klaufabrauð en við erum ekki enn búin að læra að gera brúnaðar kartöflur, svo þetta verður spennandi. En ég held að við höfum aldrei nokkurntíma verið svona tímanleg með jólagjafir, enda búin að setja síðustu gjöfina í póst til íslands þann 9. Des. Svo sannarlega sem þessi jól verða jólastress-laus, en venjulega er bobby á ferð í kringlunni á þorlákskvöldi, að velja gjafir og gera jólakort. Við erum að verða svo fullorðin!!
Eg ætla að setja markmið um að (framhald í næsta bloggi...)
21. desember 2009 klukkan 22:41
Robert Lee Evensen 4 athugasemdir
Nú erum við Hulda komin aftur heim eftir mikið stress jólafrí. 2 Vikur eru ekki nægilega langur tími til að hitta alla sem maður þekkir og hafa það notalegt með fjölskyldunum báðum um leið. Við gerðum þó gott úr því sem við höfðum og náðum að tikka flest af listunum okkar, utan við það að ég náði ekki að klára að smíða flugvélina mína. Fór nefnilega í veiðiferð með pabba og gússa í staðinn, þar sem við festum jeppann svo rækilega í drullu að við veiddum ekki neitt. Það var engu að síður mjög góð ferð. Veiðihúsið sem við gistum í var ekkert annað en gömlu vinnubúðirnar okkar sem við eyddum mörgum vikum í hérna í denn, þegar við vorum að plægja niður kapla eða gera einhvern annan fjanda af okkur.
Eg býst við að hulda muni rekja jólafríið í gegn á sínu bloggi svo ég nenni ekki að skrifa það allt hér líka. Sjá Huldublogg hér. Eitt get ég þó sagt, en það er það að við erum trúlofuð núna, og ætlum jafnvel að eiga fund með prestinum einn góðan sumardag árið 2010. Það gerðist á jóladag en upphaflega planið var aðfangadagur. Mér var bara of heitt þann dag og með kökk í hálsinum af einhverskonar stressi svo það tókst ekki. Hvernig ætli sjálf giftingin verði??? Hulda er strax byrjuð að plana og spurði mig í gær í hvaða fötum ég ætlaði að vera, en ég svaraði bara að ég skildi vera búinn að ákveða það um páskana á næsta ári. Henni finnst ég ábyggilega full rólegur, hehe
En núna erum við í óða önn með að leita okkur að íbúð nær vinnunni hennar huldu, erum búin að fá að skoða helmargar holur, misgóðar og misdýrar að sjálfsögðu, en við gerum ráð fyrir að ákveða okkur í næstu viku og flytja svo 1 feb. Það er allavega úr nægu að velja. En já það er kannski best að segja það núna að við erum búin að ákveða að bíða með að versla okkar eigin íbúð þangað til markaðurinn kemst á aðeins meira jafnvægi, og ætlum að leigja í svona ár í viðbóðt. Þá verðum við líka komin með hærri laun og fáum betra greiðslumat, svo þetta er allt skv planinu:)
Svo kemur Dettifossinn á mánudag og ætlar að búa með okkur þangað til hann finnur sína eigin íbúð. ég ætla sko að láta hann svitna við kassaburð í flutningunum, múhahaha, (ég hef sko aldrei skrifað þetta áður)
EG held bara ég hafi ekki meira um þetta að segja svo ég ætla að bara að ýta á send og slökkva á tölvunni.
þangað til næst bobby
10. janúar 2009 klukkan 18:46
Robert Lee Evensen 5 athugasemdir
Einu sinni fyrir langa longu... ..tegar vid bjuggum í Eyrarlandsveginum vid Hjalti og Nonni, tá vorum vid einn daginn í bæjarferd og hittum tar rússneskan sjómann. Okkur fannst svo snidugt ad bjóda honum ad koma med okkur heim til drekka med okkur smá vodkasull. Vid fengum ad taka myndir af okkur med honum heima í stofu en svo endadi tad med tví ad hann var búinn ad drekka allt sem vid áttum. Ég hef lengi óskad mér tess ad geta hefnt mín fyrir ad hafa misst allt áfengid mitt svona snarlega, en um sídustu helgi tókst mér tad. Eg og Kafteinninn vorum í bæjarferd á svalbarda um helgina og hittum tar tvo námuverkamenn, sem voru kannski um tvítugt. Teim fannst vid vera eitthvad svo skrítnir ad teir vildu endilega fá okkur med heim í smá drykk. Vid sogdum já vid tví og tegar tangad var komid fengu teir mynd af sér med okkur í stofunni heima hjá teim en svo tókum vid okkur til og klárudum alla drykkina teirra. Eg sá um ad klára vodkann en kafteinninn sá um rommid og smá koníakleifar. Tarmed vorum vid eiginlega ordir rússnesku sjómennirnir teirra og tannig gott fólk, gengur hringrás lífsins. Eg er tví greinilega kominn yfir mitt blómaskeid og farinn ad studla ad gódum minningum já eda hefndarhug annarra.
Annars er tad ad frétta ad fyrsta millilanda fluginu mínu er lokid og telst vera kæmpe success! Vid flugum frá Svalbarda til Tromsø og tadan til Bodø og tadan til Akureyrar. 12 tímar í loftinu tann daginn og eg kominn med hausverk af vokvaskorti og súrefnisleysi, vid erum sko ekki med klóst um bord og getum tví ekki drukkid of mikid án vandræda. Tar gistum vid svo eina nótt og eg keypti mér jólaøl og hausverkurinn hvarf. Svo daginn eftir flugum vid restina til Sondi og svo er ég a leid heim til CHP í dag. Hlakka til ad koma heim, en svo fæ ég langt langt langt frí.
Bobby over
19. desember 2008 klukkan 12:02
Robert Lee Evensen 8 athugasemdir
Það er æðislegt að heyra svona mikla norsku aftur. mér lýður eins og ég sé staddur í miðjum söngleik um kulda og snjó og flugferðir.
Twin otterinn okkar er með um 7:30 tíma flugþol. Svalbarði direct Akureyri: 6:45 tímar í logni. Þaðan til Söndi eru 5:30 Svalbarði direct Constable Pynt á grænlandi: 6:30 tímar. Þar er enginn varaflugvöllur nálægt. við þurfum því að hafa helvetes masse tailwind og kanún veður á áfangastað til að það lukkist. þaðan til Söndi eru 4:45 Svalbarði direct Bobö í Noregi: 4:30 Bodö direct Akureyri: 6:00
við Kafteinn Ingmar erum annars að velta fyrir okkur hvaða leið við getum farið heim eftir helgina. Það er ekki alveg víst hvenar við verðum búnir hér en við gerum okkur vonir um að komast af stað heimáleið á mánudag. Við eigum að fljúga "Poffa" eins og vélin okkar heitir venjulega, heim til grænlands rétt fyrir jólin, og það verður þá mitt fyrsta millilanda flug undir stýri. Spennandi:) Dvölin hér er búin að vera ágæt, en við erum búnir að fljúga töluvert meira en gert var ráð fyrir í upphafi. hér er svört nótt allan sólarhringinn en í gær var hinsvegar heiðskírt og fullt "hádegis"tungl. Við gátum því séð útlínur eyjanna, en pínu skrítið að vera búinn að fljúga margoft yfir svæði sem maður hefur ekki minnstu hugmynd um hvernig lýtur út eða hvaða ógvekjandi fjöll leynast í náttmyrkrinu.
Okkur var boðið á jólahlaðborð á vegum viðskiptavinarins um síðustu helgi, og þar sátum við og átum okkur blindfulla af pinnakjöti, selkjöti og hvalkjöti. Pinnakjöt er einhverskonar lamb, sem bragðast eins og saltaður, reyktur siginn fiskur. mjög gott samt. Sel og hval þarf ég varla að útskýra. Svo sátum við og hlustuðum á norsku vini okkar syngja jólalög á bullandi norsku við undirspil skemmtara. allt í takt við söngleikinn að sjálfsögðu.
jæja, nú er bókasafnið að loka, svo ég verð að hætta á netinu hér. Það var samt eitthvað sem ég ætlaði að segja, en ég man það ekki núna svo kannski ég komi með nýja færslu innan skamms.
set hér hlé á þessa söngleikjalýsingu
over
09. desember 2008 klukkan 16:50
Robert Lee Evensen 4 athugasemdir
dagarnir renna allir saman í eina súpu þegar maður þarf ekki að vakna á morgnanna nema til að borða. Eg er að verða aumingi með hor á þessu hangsi.
Nýjasta æðið mitt tengist flugmódelum. Eg á nefnilega eina fjarstýrða flugvél heima hjá Tengdó á Ak sem er enn bara hálfsmíðuð síðan árið 1993. Eg held það væri sniðugt plan að reyna að koma henni saman loksins núna um jólin og afgreiða hana í eitt skipti fyrir öll. Endanlega afgreiðslan væri nátturulega bara að brotlenda henni í fyrsta flugi, en ég mun sennilega aldrei tíma að fljúga henni. Vinnuheitið á þessu prosjekti mun vera "uppvakningurinn". Síðustu dagar hafa farið í að lesa mig til um flugvélasmíði á netinu, og ég er búinn að gera langan innkaupalista yfir allskonar nauðsynjar sem þarf. Eg gekk líka svo langt að panta mér TwinOtter model í skalanum 1:72 til að líma saman eftir jólin. Hún verður reyndar ekki fjarstýrð, en ég er samt búinn að finna mér svoleiðis í skalanum 1:9 á netinu, sem ég mun ekki versla mér fyrr en ég verð búinn að setja saman og læra á uppvakninginn. Hlakka mikið til...
Annars er ég búinn að vera móður í morgun að leika tölvukall, ekki wii kall heldur svona alvöru tölvukall. Byrjaði daginn eiitursnemma á því að fá mér rauðvíns-afganga helgarinnar og fara með stóru tölvuna útá svalir og þvo hana með slönguvatni og sápu. Svo setti ég upp allskonar drivera og forrit sem eru búin að vera á leiðinni lengi, og er alveg svakalega stoltur af mér fyrir þennan dugnað. Nú ætti að vera hægt að tala í mikrófón í hana.
Annars er það bara svalbarði á fimmtudag, er að verða kominn með 2 stórar töskur af ísbjarnagöllum svo mér verði ekki kalt þarna. en nú þarf ég að fara að snýta mér og hlaupa eina ferð í búð..
01. desember 2008 klukkan 13:42
Robert Lee Evensen 4 athugasemdir
þessi spurning kemur alltaf upp á hverju ári en alltaf er ég jafn óviðbúinn og úrræðalítill.. mér datt í hug jafnvel að gefa henni 10.000 stykkja púsl með mynd af mér en ég er ekki viss um að hún myndi nenna því. Eg býst allavega við að þurfa að vera lengur í burtu en 3 vikur ef hún á að geta klárað það.
Að öðru leyti er jólaundirbúningurinn kominn á þokkalegt skrið, en ástæða þess að við erum svona tímanlega að þessu er sú að ég verð fjarverandi frá 4 des og alveg þangað til við förum heim aftur sem verður 21 des. Planið er að fara til Svalbarða á twinotternum á vit ísbjarna og annara ógnvekjandi fyrirbæra. vonandi fæ ég að smakka selasúpu. Við erum búin að gera jólakortalistann og ákveða nokkurnvegin hvaða jólagjafir verða í boði í ár en það er enn eftir að græja þær. Við erum líka búin að baka smá, en við gúgluðum piparkökuuppskrift sem var ekki með neinum pipar!! hún tókst ekki vel. Súkkulaði smákökurnar tókust hinsvegar gríðarvel að vanda og eru að verða búnar strax. Eg elska að vera heima að boðra smákökur á daginn!! það er reyndar eins gott að ég hafi þær því annars væri lítið við að hafast á daginn, hulda í vinnunni og mér gengur enn ekki sérlega vel að finna aukavinnu. Þar fyrir utan virðast allir ætla að vera leiðinlegir og þykjast vera í prófum:) skömm á ykkur námsmenn!! þegar ég er ekki á þessum bölvaða tímaþjófi sem kallast facebook, þá er ég uppí sófa með killers eða kings of leons í botni að lesa syrpuna. ljúft líf. já ég er líka helling á íbúðaleitarinternetsíðum, en við erum ennþá ákveðin í að flytja. erum að leita að bæði íbúðum til sölu og til leigu. Fáum enn einn fundinn með bankanum fljótlega en okkur grunar kannski að það væri sniðugt að doka smá með að versla sér kofa strax, miðað við þessa óvissu sem ríkir í bankakerfum heimsins. við höldum jafnvel að það sé sniðugra a ðfara í minni leiguíbúð og safna sér upp smá höfuðstól til að geta fjárfest í steypu síðar. eini gallinn er sá að meðan við erum að legja, töpum við mánaðarlega fullt af seðlum útum gluggan, og eigum engan möguleika á að sjá þá aftur..
jæja, nóg komið af þessu í bili ég er hættur að gefa loforð um myndir, því ég svík þau alltaf. þær koma bara þegar þær koma..
later
25. nóvember 2008 klukkan 16:22
Robert Lee Evensen 3 athugasemdir
Gullfallegur dagur í Nuuk í dag.. sól og heiðskýrt og allt fullt af snjó. gerist ekki betra.
Við komum í síðustu viku heim frá vel heppnaðri kanada ferð og fórum beinti til sondi, þaðan sem við Bahnsen flugum uppá toppin á grænlandsjökli. Sá staður heitir Summit og er í um 10.500 feta hæð sem er tæpir 4000m. Þar er einhver bækistöð vísindamanna og flugvöllur lagður í snóinn og þegar við komum var -48°C frost og heiðskýrt. fékk svona smá sjokk þegar ég opnaði hurðina á flugvélinni og andaði að mér svona koldu lofti. Þar er dagsljós aðeins í örfáa tíma á dag á þessum árstíma svo þar skiptir sköpum að vera snöggur að afferma vélina og fylla hana aftur af því sem á að fara með tilbaka. Við förum aðra ferð á morgun ef veður leyfir og svo kem ég heim til kaupmannahafnar til huldu minnar eftir það. Eg mun koma færandi hendi því í kanada keypti ég nintendo wii og ljósmyndavél ásamt smá surprice sem ég var búinn að lofa. Eg er strax byrjaður á innkaupalistanum fyrir næsta ár en ég mun vera í toronto í oktober á hverju ári í flughermi það sem eftir er minnar starfsævi hjá Air greenland.
í gærmorgun vaknaði ég við söng innar úr forstofu, og ég vissi ekki hvað í fjandanum væri í gangi. Eg veit ekki með ykkur en allavega þarf heilinn minn nokkar aukamínutur til að vakna eftir að augun opnast, en þessi söngur var ekki til að bæta viðbragstímann. þegar ég kíkti fram, stóð þar iðnaðarmaður með ipod í eyrunum og var að skipta um einhvern vatnsmæli. En honum brá líka smá við að sjá mig, og það gladdi mig. mér finnst nefnilega jafn gaman að sjá fólki bregða eins og mér þykir leiðinegt að verða brugðið sjálfur.
Eger búinn að fá planið fyrir næstu mánuði og það stefnir í það að ég fari í stutta ferð til svalbarða á twinotternum mínum í desember en svo fæ ég jólafrí til 26 feb. það verður að teljast góðar fréttir:) En bestu fréttir dagsins eru þær að sennilega munu bæði bergmennið og helgi joina mér í dönsku samfélagi eftir áramót, svo það er gríðarmikið stuð framundan í kaupmannahöfn
lifið heil over
09. nóvember 2008 klukkan 17:37
Robert Lee Evensen 5 athugasemdir
djöfull er maður að verða lélegur í þessu bloggi, en mér finnst ég ekki hafa neitt merkilegt að segja þessa dagana.. En samt er ég hæstánægður með lífið og tilveruna svo ekki er þetta neitt skammdegisþunglyndi!! Kannski er blogg bara hætt að vera í tísku... og ég hef jú alltaf verið mikill tískumógúll!
Það sem helst hefur borið á góma okkar huldu uppá síðkastið hefur snúist um nr1. hvað við fáum margar íslenskar verðlausar krónur fyrir dönsku krónurnar okkar. Niðurstaðan varð sú að við tókum lán uppá 45k danskar hér til að greiða alveg niður yfirdráttinn heima sem var kominn niður fyrir milljón. Þannig tryggðum við okkur gengið 20 sem er barasta hið besta mál.
nr2. hvaða íbúð við eigum að kaupa en hér er íbúðaverð á full fart nedover og húsaleigan of há. Við eða allavega ég held að við ættum að geta pressað verðið allaveg niður um 500k danskan í viðbóð við þá miklu "afslætti" sem þegar eru. Menn eru bara svo snar desperat að þeir bara verða að sætta sig við mitt boð. Við fórum svo líka á fund með bankanum og fengum greiðslumat svo allavega vitum við nú hvað við höfum efni á mikilli steypu og meððí.
nr3 var kannski aðallega á gómum okkar pésa en ég er búinn að versla mér miða á tónleik með Metallica í höfninni þann 22 júlí 2009. 3 konsertar í Forum seldust upp á örfáum tímum og aukakonsertinn seldist upp örfáum dögum síðar. hlakka mikið til að hoppa um heitur, sveittur og þreyttur milli metalhausanna og það besta við allt er að master pálmason ætlar að mæta líka. mikið stuð væntanlegt..
ég er svo nýkominn aftur til grænlands í vinnuna og reyndar nýfarinn aftur. Eg er staddur í 5000 manna inúítabæ í norð-austur kanada sem heitir Iqaluit. Við áttum reyndar að fara alla leið til Toronto en það tókst ekki í dag. þannig er að það geysar fárviðri í Nuuk og í gær áttum við að leggja í hann en þá var flugvellinum bara hreinlega lokað. Eg hinsvegar í ofurtrú minni á sjálfum mér lagði af stað með strætó uppá flugvöll til að tala við hulduna mína gegnum skype, en þar sem strætóinn fór einhvert í buskann og ekkert nálægt flugvellinum, þurfti ég að labba restina. Eg fann þó á endanum flugvöllinn, helblautur og kaldur, eftir að hafa "fokið" (í bókstaflegri merkingu) milli nokkura hóla og gat þá sagt hæ við frúnna. Svo þegar ég var búinn að sinna internet þörfum mínum þann daginn ákvað Ofurhetjan Bobby Generall að "fjúka" bara allaleið heim til að spara sér taxapeninginn því strætó var hættur. því til ofurhetjuauka má nefna að venjulega tkeur um 40 min að labba heim af vellinum i nill wind condition, svo ég tel mig eiga þennan titil fyllilega skilið:) Hvar var ég.. já svo í dag var planið að reyna aftur við brottför en mér fannst vindinn ekkert hafa lægt og hafði því enga trú á þessu dæmi en þá kom skyndilega útkall. þá hafði vindhraðinn akkurat farið niður fyrir hámörkin fyrir flugtak en lendingar voru enn bannaðar. En við ss komumst loksins af stað eftir mikið stress en því miður rétt of seint svo við misstum af tengiflugum héðan. Af þeim sökum mun eg njóta næturinnar hér á hótel Discovery Lodge:)
jæja, er þetta ekki ágætt í bili.. Nei, eitt enn.. Við cpt. lars bansen vorum að borða burger áðan og meðan við sátum og átum komu 6 farandsalar til að reyna að selja okkur heimagerða skartgripi og annað skran. Það er 0.1% af ölllum bænum!!! (einn kom sko tvisvar)
Nú er þetta ágætt:) farið vel með ykkur öll Bobby Generall Ofurhetja
29. október 2008 klukkan 02:22
Robert Lee Evensen 8 athugasemdir
Þessi yfirskrift passar bara fínt við eftir síðustu 3 vikurnar í Grænlandi...
Við vorum staðsettir í Sönderstrom vegna verkefnis nær allann tímann, en hinsvega gátum við bara flogið örfá daga vegna veðurs.Það var þá aðallega of lágskýjað til að við gætum flogið, svo restina af tímanum sat ég á hotelinu og horfði á allar bíomyndirnar mínar og las öll dagblöðin(líka þessi grænlensku) og fylgdist með fjármálaástandinu,hehe fyrsta sinn sem ég er farinn að fylgjast með peningamálum svo þetta hlýtur að vera alvarlegt ástand.Já ég fór líka í refaleitarfjallgöngu uppá „eldhúsfjall“ eða“ kokkenfjellet“... ...ég fann samt enga refi!!
Það góða við ferðina var þó það að ég komst í 500 flugtímana mína, sem mér finnst mjög skemmtilegt.Þá er ég buinn að fljúga rúma 280 tíma hjá fyrirtækinu síðan ég byrjaði í febrúar, en hjá Exton í gamla daga vann ég um 250 tíma á hverjum mánuði.Lífstíll ljósamanns er ekkert líkur lífstíls flugmanns..Ég gæti meira segja átt von á að taka á mig mynd velmegunar, sem sé kúlulaga.
Eg kom annars heim til huldu fyrir viku siðan og er búinn að leita á náðir nokkurra ljósafyrirtækja um aukavinnu en ekkert fengið ennþá..Fór fyrst á föstudaginn og gerði heiðarlega tilraun til að kynna mig fyrir stórri ljósaleigu, en þá var enginn heima nema fugl sem var kominn í sjálfheldu í stigaganginum þeirra.Mér leið svo illa fyrir fuglinn að ég fór upp á efstu hæð og fann svalahurð sem ég opnaði.Svo fór ég niður ganginn og gretti mig framan í fuglinn til að hræða hann uppávið og í átt að svölunum, sem tókst undir lokin eftir nokkur extreme low-pass orustufuglsins framhjá hausnum á mér.
Svo aftur á mánudaginn fór ég í heimsókn til þeirra eingöngu til þess að komast að því að þetta ákveðna fyrirtæki veit ekki einusinni hvað ljós er.Þá er Þetta tölvunördafyrirtæki með sama nafn og stóra ljósaleigan og þeir höfðu engan áhuga á að ráða ljósamann til vinnu.Svo verð ég kannski að taka það fram að svo fann ég rétta fyrirtækið á heimleiðinni og náði að kynna mig fyrir yfirvöldunum þar.
Nú eru allir að missa sig í krepputali og ég hef lítið um það að segja en ég get þó sagt það að hún er ekki bara vondar fréttir, meðan ég er að losa mig við yfirdráttinn minn sem stóð í 1.700.000 fyrir 3 mánuðum síðan.Með heavý sparnaði næstu vikurnar gæti hann verið horfinn fyrir eða um áramót sem væri bara frábært...Þessi yfirdráttur varð til þegar við fluttum til Bretlands í byrjun 2006 og skömmu síðar byrjaði mini-krísan og pundið hækkaði úr 110 krónum uppí 160 og peningarnir mínir hurfu bókstaflega.Eg dauðvorkenni því öðrum námsmönnum sem búa erlendis og eru að nota íslensku auðævin sín núna í mega-krísunni. Ekki mikið stuð hjá þeim
Eeen þetta reddast allt eins og vanalega..
Biðst afsökunar á lélegum árangri í bloggi, hef bara svo lítið merkilegt að segja, og lítið af sögum um orustufuglum. Reyni að setja eitthvað meira hér inn á næstunni ásamt nokkrum myndum.
08. október 2008 klukkan 20:33
Robert Lee Evensen 1 athugasemd